Færsluflokkur: Bloggar

Tveir fyrir einn!

  

Það eru ekki margir sem vilja koma einhverjum upplýsingum um sig og sína á þessa síðu. Það er helst Guðrún V. sem stendur sig og svo Rögnvaldur Valbergs að skrifast á við hana. Hún gleymdi samt alveg að geta þess að hún er orðin bátseigandi og hefur ráðið mig sem háseta ( reyndar finnst mér að sú litla starfslýsing sem ég hef fengið minni meira á störf  þernu).

Þegar Doddi heyrði að hún ætlaði að hafa bar um borð bauðst hann til að verða afleysingaskipstjóri hjá henni, ekki viljum við hana upp á sker. 

Af okkur Dodda er það að frétta að ég er byrjuð 13. árið sem formaður í Vöku (verð líklega að leggja félagið niður til að losna úr því starfi) en hann hætti til sjós fyrir hálfu öðru ári og hefur síðan að mestu verið á Hellisheiðinni í vinnu hjá Jarðborunum ( þeir Skúli Jóhanns vinna saman á  bornum Sleipni). 

Þetta þýðir að þegar hann hætti til sjós, þá fyrst hófst fjarbúð okkar fyrir alvöru. Hann  býr sem sagt í Reykjavík ásamt Loga yngsta syni okkar, en ég er ein  hérna fyrir norðan og skammast í einni og einni flugu sem rekst inn til mín.

Eldri synir okkar tveir Björn og Börkur búa í Hafnarfirði og Reykjavík, eiga sína stúlkuna hvor, þær Telmu Dögg á ellefta ári og Birtu Dís rétt tveggja ára. Björn fékk svo einn átta ára strák,  Snorra með sambýlis konu sínni.

Guðrún dóttir okkar býr í Balltimore í USA, hún er þar í sambúð og fékk líka átta ára strák, Derek jr eða DJ með í ráðahagnum. Hún er í námi og ég er auðvitað að vona að hún flytji heim að námi loknu en mamma ræður víst ekki öllu þar um. 

Við fórum öll fjölskyldan saman í Klettafjöllin á skíði sl. vetur í tilefni af 100 ára afmæli foreldranna. Þetta var loforð sem ég hafði í mesta sakleysi gefið eldri börnunum mínum þremur þegar þau komu heim úr ferð í Alpana fyrir einhverjum 10 eða 12 árum. Þau spurðu hvenær við færum í svona fjölskylduskíðaferð og þá var fimmtugsafmælið svo órafjarri að mér fannst þetta upplagt svar. En við sem sagt fórum 8 frá Íslandi og þau hittu okkur svo í Denver Guðrún og Derk ( það vantaði strákin þeirra og sambýliskonu Bödda og strákinn). Þetta var þvílíkt ævintýri að ég mæli svo sannarlega með því að fólk gefi vanhugsuð loforð og efni þau svo við tækifæri. 

Guðrún Valtýs var að nefna það að hún væri að skemmta sér í fimmtugsafmælum þessa dagana. Doddi segist hafa haldið upp á sitt afmæli í Breckenridge í Colorado í vetur, bauð fjölskyldunni út að borða.  

Ég ætla hins vegar að bjóða upp á garðveislu að Suðurgötu 77 þann 4. ágúst nk. og þangað eru allir boðnir sem vetlingi geta valdið. Ég á 750 fermetra lóð og hef tryggt mér aðgang að fleiri görðum í nágrenninu þannig að vonandi geta allir tillt sér á teppi eða stól og skóflað í sig einhverju góðgæti.   

Hlakka til að sjá ykkur Signý Jóhannesdóttir

p.s. setti nokkrar myndir inn í myndaalbúmið.


Fréttir af Guðrúnu V

Jæja, þar sem enginn hefur sent fréttir af okkur skólasystkinunum / árgangnum, þá ákvað ég að ríða á vaðið.

Sonur minn gerði mig að ömmu seint í apríl og það er náttúrulega frábært.

Síðan skipti ég um vinnu í janúar og var spurð að því hvort ég væri eitthvað að tapa mér, það skipti enginn með fullu viti um vinnu (af fúsum og frjálsum vilja) sem væri kominn á þennan aldur, hvort ég væri virkilega komin með gráan fiðring eða eitthvað, EN VIÐ SEM ERUM Á OKKAR ALDRI ERUM KLÁRLEGA Í FULLU FJÖRI OG FÆR Í HVAÐ SEM ER.

Gott ráð er það sem ég heyrði um daginn frá aðila sem skilgreindi "miðaldra" sem aldurinn sem væri mitt á milli þess sem hann er og þess aldurs sem hann reiknaði með að ná. Mjög hagstætt.

kveðja að sinni. Guðrún sem er að skemmta sér í fimmtugsafmælum þetta árið.


Afmælin á árinu

Ég hef mest orðið vör við 50 ára afmælin hér sunnan heiða, en frétti í vor af því hvernig Anna Marie ætlar að halda uppá sitt afmæli.

Hún er búin að bjóða vinum og vandamönnum í göngu út á Siglunes, frá Kálfsdal yfir í Nesdalinn og síðan með bát til baka.

 Frábær hugmynd, ef einhverjir luma á sögum að afmælunum, þá væri skemmtilegt að heyra þær.

Hægt er að smella á athugasemdir og skrá inn, eða senda texta til okkar Signýjar. 

 kv. Guðrún

gudrun@iphive.is og signy@vakasiglo.is


Kunnugleg eða ókunnug andlit!

 

Kæru skólafélagar!

Nú er komið að því að fara að vera í sambandi og byggja upp tilhlökkun vegna árgangsmótsins. Við stöllur Guðrún V og undirrituð ætlum að reyna að halda hópnum við efnið. Það væri gaman að fá frá ykkur nokkrar línur um hvað á daga ykkar hefur drifið síðustu ár og e.t.v. nokkrar myndir. Þetta á auðvitað við ef þið viljið losna við að gefa ítarlega skýrslu á mótinu. Ef þið hinns vegar kjósið að vera leyninúmerið í ár þá er það ykkar mál. Skýrsla er sem sagt ekki skipun, bara fróm ósk. Svona verður maður nú hógvær og lítillátur með aldrinum.

Kveðja,

Signý

 


Árgangsmót 13.-15. júlí 2007! 57 árgangurinn

Siglufirði  3.mars 2007 

Ágæti jafnaldri,skólafélagi eða fermingarsystkin! 

Glöggir menn telja að á þessu ári 2007 verði fríður flokkur fólks hálfrar aldar gamall. Þetta ágæta fólk sem þessum flokki tilheyrir kom flest í heiminn á Siglufirði árið 1957. Einhver dæmi eru þó um að bréf þetta fái þeir sem voru svo lánsamir að flytjast til staðarins og kynnast þessu siglfirska módeli “57, ganga í skóla með hópnum eða ganga upp að altarinu á fermingardaginn 20. maí 1971. Einhverjir hlutu þau örlög að flytja burt úr bænum áður en að fermingu kom eða skólagöngu lauk. Þetta er allt saman liðin tíð og komin ný öld, nýtt útlit, breytt vaxtarlag og meiri þroski hjá flestum. Sumir hafa jafnvel breyst svo mikið að heyrst hefur að Doddi Björns hafi þurft að kynna sig með nafni og númeri fyrir Gumma Kötu, þar sem þeir hittust af tilviljun á förnum vegi í fyrravetur. Svona lagað nær auðvitað ekki nokkurri átt og því stendur til að halda árgangsmót dagana 13.- 15. júlí nk.  Þar geta menn og konur rifjað upp liðna tíð, gert upp gömul mál og reynt að komast að því hvað á daga gömlu skólafélaganna hefur drifið síðan menn hittust síðast.

Heimafólkið hefur með samráði við saumaklúbbinn Nálina sett upp drög að dagskrá: 

Föstudagur 13. júlí  eftir kl. 19:00 ---???         Lions húsið að Suðurgötu 6, komið saman og spjallað, léttar veitingar og í bland við gleði og gott skap.

Laugardagur 14. júlí kl. 10:30  Barnaskólinn við Norðurgötu heimsóttur og síðan Þjóðlagasetrið. Komið verður við á Pizza 67 og þar fá menn súpu og salat að hætti Ástu Odds. Síðan farið upp í kirkju og þaðan í Gaggann.

Við gerum ráð fyrir góðu veðri og drífum okkur upp á snjóflóðavarnargarðana og skoðum þá. Vilji svo óheppilega til að veður verði vott þá förum við í Bátahúsið og getum auðvitað gert það líka þó sólin skíni ef tími vinnst til.  Við gerum ráð fyrir að hafa einskonar bækistöð í Lionshúsinu um helgina og getum alfarið ráðið notkun þess.

 Kl. 20:00 kvöldverður að Bíó Café að hætti Finna Hauks og Sibbu

Ætlast er til að allir þeir sem hafa getu og/eða þörf fyrir að láta ljós sitt skína og skemmta sér og öðrum, stigi á stokk og slái í gegn. Við gerum ráð fyrir dansleik og fjöri fram eftir nóttu. Vitum af árgangi “47 í Allanum hjá Halla Bó og þar verður Geirmundur. Finni hlýtur að bjóða upp á spilverk sem hæfir módeli “57 hjá sér.  Sunnudagurinn 15. júlí – kossar, knús og kveðjur... klukkan ???? 

Innifalið í mótsgjaldi verður, húsaleiga/safngjald- léttar veitingar- súpa og kvöldverður með dansleik kr. 8.000.- fyrir manninn.

Stofnaður hefur verið reikningur : 1102-05-401896 kt. 030857-5939 . Best væri að greiða mótsgjaldið ekki seinna en 3. júlí. Með vorinu verður opnuð heimasíða árgangsins www.siglo57.com og þar geta menn fylgst með fréttum og komið einhverjum skilaboðum á framfæri.  Guðrún Valtýs verður ábyrgðarmaður síðunnar en hefur fengið loforð um hjálp.Þeir sem hafa aðgang að tölvupósti eru beðnir að senda mér póst á signy@vakasiglo.is ef þeir vilja komast á póstlista og/eða vilja fá meiri upplýsingar. Líka er hægt að hringja í 894-9804.

Nú er mál að linni, bestu kveðjur, sjáumst hress.

Fh. heimafólks og Nálarinnar-Signý Jóhannesdóttir


Fyrsta færslan á þessari síðu

Nú fer að styttast í það að árgangurinn hittist og munum við verða með fréttir og upplýsingar á þessari síðu.

Ef einhverjir í árgangnum eru með blog síður, þá er hægt að bæta þeim inn á  "bloggvini".

Hægt að senda upplýsingar og myndir á gudrun@iphive.is eða signy@vakasiglo.is

Síðan geta allir skráð athugasemdir við færslur.

kveðja

Guðrún og Signý


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband