2.7.2007 | 14:08
Tveir fyrir einn!
Það eru ekki margir sem vilja koma einhverjum upplýsingum um sig og sína á þessa síðu. Það er helst Guðrún V. sem stendur sig og svo Rögnvaldur Valbergs að skrifast á við hana. Hún gleymdi samt alveg að geta þess að hún er orðin bátseigandi og hefur ráðið mig sem háseta ( reyndar finnst mér að sú litla starfslýsing sem ég hef fengið minni meira á störf þernu).
Þegar Doddi heyrði að hún ætlaði að hafa bar um borð bauðst hann til að verða afleysingaskipstjóri hjá henni, ekki viljum við hana upp á sker.Af okkur Dodda er það að frétta að ég er byrjuð 13. árið sem formaður í Vöku (verð líklega að leggja félagið niður til að losna úr því starfi) en hann hætti til sjós fyrir hálfu öðru ári og hefur síðan að mestu verið á Hellisheiðinni í vinnu hjá Jarðborunum ( þeir Skúli Jóhanns vinna saman á bornum Sleipni).
Þetta þýðir að þegar hann hætti til sjós, þá fyrst hófst fjarbúð okkar fyrir alvöru. Hann býr sem sagt í Reykjavík ásamt Loga yngsta syni okkar, en ég er ein hérna fyrir norðan og skammast í einni og einni flugu sem rekst inn til mín.
Eldri synir okkar tveir Björn og Börkur búa í Hafnarfirði og Reykjavík, eiga sína stúlkuna hvor, þær Telmu Dögg á ellefta ári og Birtu Dís rétt tveggja ára. Björn fékk svo einn átta ára strák, Snorra með sambýlis konu sínni.
Guðrún dóttir okkar býr í Balltimore í USA, hún er þar í sambúð og fékk líka átta ára strák, Derek jr eða DJ með í ráðahagnum. Hún er í námi og ég er auðvitað að vona að hún flytji heim að námi loknu en mamma ræður víst ekki öllu þar um.
Við fórum öll fjölskyldan saman í Klettafjöllin á skíði sl. vetur í tilefni af 100 ára afmæli foreldranna. Þetta var loforð sem ég hafði í mesta sakleysi gefið eldri börnunum mínum þremur þegar þau komu heim úr ferð í Alpana fyrir einhverjum 10 eða 12 árum. Þau spurðu hvenær við færum í svona fjölskylduskíðaferð og þá var fimmtugsafmælið svo órafjarri að mér fannst þetta upplagt svar. En við sem sagt fórum 8 frá Íslandi og þau hittu okkur svo í Denver Guðrún og Derk ( það vantaði strákin þeirra og sambýliskonu Bödda og strákinn). Þetta var þvílíkt ævintýri að ég mæli svo sannarlega með því að fólk gefi vanhugsuð loforð og efni þau svo við tækifæri.
Guðrún Valtýs var að nefna það að hún væri að skemmta sér í fimmtugsafmælum þessa dagana. Doddi segist hafa haldið upp á sitt afmæli í Breckenridge í Colorado í vetur, bauð fjölskyldunni út að borða.
Ég ætla hins vegar að bjóða upp á garðveislu að Suðurgötu 77 þann 4. ágúst nk. og þangað eru allir boðnir sem vetlingi geta valdið. Ég á 750 fermetra lóð og hef tryggt mér aðgang að fleiri görðum í nágrenninu þannig að vonandi geta allir tillt sér á teppi eða stól og skóflað í sig einhverju góðgæti.
Hlakka til að sjá ykkur Signý Jóhannesdóttir
p.s. setti nokkrar myndir inn í myndaalbúmið.
Athugasemdir
Þegar sú stund rann upp hjá mér að ég fyllti hálfa öld í aldri var ég stödd í London þar sem ég eyddi viku í allt og ekki neitt.
En eins og það er nú alltaf gott að komast af og til í annað umhverfi er jafngott að komast aftur heim og ekki spillti það nú fyrir í þetta sinn að
við heimkomuna beið mín þetta líka skemmtilega bréf frá Siglufirði þar sem boðað er til árgangsmóts í sumar.
Það verður vonandi góð aðsókn og alveg örugglega mikið fjör ef ég þekki mannskapinn rétt.
Enn skemmtilegri er hugmyndin að opna heimasíðu árgangsins. Ég mun örugglega fylgjast með því sem þar birtist því ég þekki vel til góðra verka Guðrúnar Valtýs á þessu sviði af eigin reynslu í gegnum mina vinnu.
Ég er nú þegar orðin "græn" af öfund, því ég mun ekki komast á Sigló á þessum tíma því fyrir lögnu er búið að skipuleggja fjölskylduferð til
Grikklands nákvæmlega á þessum tíma þ.e. frá 14. til 28.júlí.
15 manna hópur hrópaði mig niður þegar ég nefndi breytingu á ferðinni "vegna árgangsmóts á Sigló.! ! ? .".......... Þau gera sér enga grein fyrir hverju ég er að missa af.
Ég verð því bara greinilega að sætta mig við að vera svolítið " græn" eitthvað fram eftir sumri.
En annars er allt gott af mér að frétta, ég bý á Seltjarnarnesi og starfa hjá Endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands sem fjármálastjóri. http://www.endurmenntun.is/ Dætur mínar eru tvær, Guðný mín sem kom í heiminn fyrir 34 árum og flest ykkar muna eflaust eftir,Guðný er tölvunarfræðingur og kennari, mikill dugnaðarforkur, hún er gift og hefur gert mig að þrefaldir ömmu. Friðbert 13 ára, Kolbeinn Ingi 5 ára og Eydís 2ja ára. Anna María er fædd 1985 og er því 22ja ára hún er Líffræðinemi í HÍ, ásamt því að vera mikil handbolta og íþróttakona.
Vonandi muna sem flestir skrifa af sér fréttir hér á síðuna ég fylgist spennt með.
Hafdís Ósk Kolbeinsdóttir (IP-tala skráð) 3.7.2007 kl. 13:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.