Lélegt minni eða þátttaka???

Þegar þetta er skrifað hafa 23 úr árgangnum staðfest þátttöku í árgangsmótinu með því að greiða mótsgjaldið, auk þess hefur verið greitt fyrir 11 maka. Mér telst til að ég hafi sent út bréf á 55 heppna einstaklinga í vor. Mig grunar að enn eigi nokkrir eftir að taka við sér, hef heyrt frá nokkrum sem ég held að séu bara að gleyma sér.

 Talandi um að gleyma, þá kemur upp í hugan lítil saga úr kaupfélaginu.

Ég var að snúast þar með innkaupakörfuna mína síðla dags, þar voru líka Hemmi og Finni að grípa eitthvað í körfur. Allt í einu mundi ég eftir einhverju sem var innar í búðinni, ég legg frá mér körfuna og sæki þetta sem ég hafði gleymt. Þegar ég kem að kassanum eru þeir félagar að koma þangað líka, en ég körfulaus. Mér verður að orði , "Sveim mér ef ég er ekki búinn að týna körfunni, strákar getur þetta eitthvað haft með aldurinn að gera? Þeir félagar glottu bara, en frú Sigurbjörg sem var þarna með Finna, kallaði á eftir mér þar sem ég snéri við að leita að körfunni :

"Varstu ekki búin að frétta það? Árgerð "57 hefur reynst svo gölluð að það stendur til að innkalla allann árganginn!!!

 Í þeirri von að þetta sé stórlega íkt hjá henni Sibbu, þá vona ég að einhverjir hrökkvi í gírinn næstu daga.  Heimaliðið ætlar að funda í dag kl. 18:00 hjá Ástu á Pizza 67 og leggja enn frekar á ráðin.

kv.

Signý Jóh


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gaman væri að frétta af fundinum.

Guðrún Valtýsdóttir (IP-tala skráð) 8.7.2007 kl. 13:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband