Fréttir af Hafdísi Kolbeins og kveðja til árgangsins - Hún verður á Grikklandi

Athugasemdir

1

 Þegar sú stund rann upp hjá mér að ég fyllti hálfa öld í aldri var ég stödd í London þar sem ég eyddi viku í allt og ekki neitt.

En eins og það er nú alltaf gott að komast af og til í annað umhverfi er jafngott að komast aftur heim og ekki spillti það nú fyrir í þetta sinn að
við heimkomuna beið mín þetta líka skemmtilega bréf frá Siglufirði  þar sem boðað er til árgangsmóts í sumar.

Það verður vonandi góð aðsókn og alveg örugglega mikið fjör ef ég þekki mannskapinn rétt.

Enn skemmtilegri er hugmyndin að opna heimasíðu árgangsins. Ég mun örugglega fylgjast með því sem þar birtist því ég þekki vel til góðra verka Guðrúnar Valtýs á þessu sviði af eigin reynslu í gegnum mina vinnu.

Ég er nú þegar orðin "græn" af öfund, því ég mun ekki komast á Sigló á þessum tíma því fyrir lögnu er búið að skipuleggja fjölskylduferð til
Grikklands nákvæmlega á þessum tíma  þ.e. frá 14. til 28.júlí.

15 manna hópur hrópaði mig niður þegar ég nefndi breytingu á ferðinni "vegna árgangsmóts á Sigló.! ! ? .".......... Þau gera sér enga grein fyrir hverju ég er að missa af.
Ég verð því bara greinilega að sætta mig við að vera svolítið  " græn" eitthvað fram eftir sumri.

En annars er allt gott af mér að frétta, ég bý á Seltjarnarnesi og starfa hjá Endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands sem fjármálastjóri. http://www.endurmenntun.is/  Dætur mínar eru tvær, Guðný mín sem kom í heiminn fyrir 34 árum og flest ykkar muna eflaust eftir,Guðný er tölvunarfræðingur og kennari, mikill dugnaðarforkur, hún er gift og  hefur gert mig að þrefaldir ömmu. Friðbert 13 ára, Kolbeinn Ingi 5 ára og Eydís 2ja ára. Anna María er fædd 1985 og er því 22ja ára hún er Líffræðinemi í HÍ, ásamt því að vera mikil handbolta og íþróttakona.

 

Vonandi muna sem flestir skrifa af sér fréttir hér á síðuna ég fylgist spennt með. 

 

Ég mun hugsa til ykkar dagana 13. til 15. júli og óska ykkur góðrar skemmtunar.  Gangi ykkur sem best og kær kveðja til  ykkar allra. Hafdís Ósk Kolbeinsdóttir 

 

Hafdís Ósk Kolbeinsdóttir (IP-tala skráð) 3.7.2007 kl. 13:05


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband