Takk fyrir síðast

Sæl öll og þakka þeim sem ég hitti um helgina fyrir skemmtilega helgi. 

Náði því miður ekki að mæta í dagskrárliðinn “Kveðjur – knús og kossar” í gærmorgun. Ég hafði ekki komið heim fyrr um fimm leytið um morguninn og fannst ég ekki eiga það skilið sem yfir mig gekk um sex leytið, þegar brunaboðinn í húsinu fór af stað með ærandi hávaða, rétt eins og húsið stæði í björtu báli.  Þrátt fyrir að hafa innbyrt eitthvað áfengi um kvöldið, þá fór ég samt undir óhljóðunum um allt húsið til þess að athuga hvort það væri nokkuð að kvikna í eða verið að brjótast inn þar sem ég hreinlega vissi ekki hvaðan þessi hljóð kæmu, en þetta var reykskynjari sem var staðsettur þar sem ég náði ekki til hans, en ég náði svo fyrir rest að finna lausann gólflista til þess að pota í hann og slökkva á ósköpunum, en þegar hann þagnaði, þá náði ég að sofna aftur, rumskaði um tíu leytið og hugsaði (já hugsaði ) um að fara í Lions húsið, en var nokkuð fljót (2 sek.)að ákveða að ég nennti því bara ekki og þyrfti að sofa meira.  

Einhver úr árgangnum hefur greinilega verið að fikta í stjörnuspánni á moggasíðunni, þar sem stendur um Bogmenn (t.d. mig):

“Komdu snemma heim í kvöld, á morgun er stór dagur.” Er eitthvað verið að fíflast með mig þarna eða hvað, ég stóð náttúrulega vaktina fyrir árganginn bæði kvöldin, held að Gústi hafi verið einn eftir í árgangnum þegar ég fór heim á laugardagskvöldið, en ég fór klárlega síðust út úr húsi á föstudaginn, enda LANG YNGST í þessum hópi.

Brottför frá Siglufirði í gærkvöldi seinkaði til klukkan átta um kvöldið, þannig að ég var ekki komin heim fyrr en hálf eitt í nótt, en ég fékk myndir hjá Svenna og ætla að ná myndunum líka frá Soffíu og reyni að pota einhverju af þessu inn í kvöld.  

Kveðja Guðrún Valtýsdóttir. 

Er búin að kannað málið með reykskynjarann, hann var víst bilaður, kunni ekki við að setja þessa sögu inn á netið fyrr en ég var búin að ganga úr skugga um að húsið hefði ekki brunnið til kaldra kola í gær.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband