17.7.2007 | 04:00
Myndir komnar inn
Jæja, þá er búið að pota inn nokkrum myndum.
Komst að því að ég tók greinilega nánast engar myndir og fékk aðra til þess fyrir mig og þeir tóku aðallega video.
En ég fékk flennifínar myndir hjá Svenna og er mikið af þeim komið hérna inn.
Ég tel að ég sé búin að ritskoða og taka út ekki smart myndir af okkur, en ef einhverjum finnst einhver mynd að sér ekki sæmandi á þessari síðu, þá þarf bara að láta mig eða Signýju vita og við tökum þær út.
Mér finnst allar myndirnar mjög flottar sem eru inni núna. Flestir náðust á filmu, en sumir voru sleipari en aðrir eins og t.d. Kristján Sigtryggs, sem virðist hafa komið sér hjá myndatökum, en hann hefur svo lítið að breyst að við getum sett inn gamlar myndir ef engar aðrar finnast, ég get vottað það að hann var á staðnum, því að ég var oft að ræða við hann. Reyndar var minnst tekið í matnum og á ballinu. Síðan eru frekar fáar myndir af Svenna sjálfum, enda stóð hann sig mjög vel við myndavélina og hann hefur ekkert breyst heldur.
Skilst að á föstudeginum hafi einn af flottu lýtalæknum landsins litið inn í partýið hjá okkur og hafi ekki séð neinn business fyrir sig þar og hrökklast út.
Signý nánast baðst afsökunar á því að fara heim af ballinu á laugardaginn á undan mér og ég var óþarflega grimm við hana og tilkynnti henni að þetta yrði skráð að enn einu sinni hafi gömlu konurnar í saumaklúbbnum farið snemma heim að sofa.
Það var mjög gaman á ballinu, frábær hljómsveit og frábær matur, bæði hjá Finna og Ástu í hádeginu.
Heyrði að Signý hefði gefið Friðfinni takmarkalaust skotleyfi á sig og þá væntanlega aðra líka, en ég held að Finni sé eitthvað að mýkjast með árunum, því að hvergi fannst mér hann skjóta fast.
Gaman væri að heyra af ævintýrum sem gamla fólkið hugsanlega lenti í, ég veit um einn aðila sem lenti í aðstæðum sem hann hafði ekki séð fyrir að hann ætti eftir að lenda í á gamals aldri, en læt hann eða fjölskylduna um það hvort sú saga verður sett á netið.
Og að lokum, þá ítreka ég þakkir okkar fyrir móttökurnar sem voru alveg hreint FRÁBÆRAR og dagskráin FLOTT:
kveðja
Kapteinn Guðrún
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.