Færsluflokkur: Bloggar

Nokkrir brandarar

Nokkrir brandarar frá GV
Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Fleiri myndir ?

Sæl öll

Ef fleiri luma á myndum sem væri gaman að setja á síðuna, þá væri gott að láta mig eða Signýju vita og við myndum nálgast þær.

Ég man ekkert hverjir voru að taka myndir.

kveðja, Guðrún


Kveðja frá Soffíu og myndir

Kæru skólafélagar

Hér koma myndir sem Óli tók.

Það var ánægjulegt að hitta ykkur og eiga með ykkur skemmtilegar stundir. Þetta heppnaðist í alla staði vel, vel skipulagt og góðar veitingar.

Vonumst til að hitta ykkur eftir fimm ár á Siglufirði. Einnig er ég  reiðubúin að boða til samkomu í Reykjavík að ári liðnu. Gera tilraun til að árgangurinn hittist einu sinni á ári.

Takk fyrir frábærar móttökur og skemmtilega daga.

Kær kveðja

Soffía og Óli


Myndir komnar inn

Jæja, þá er búið að pota inn nokkrum myndum.

 

Komst að því að ég tók greinilega nánast engar myndir og fékk aðra til þess fyrir mig og þeir tóku aðallega video.

 

En ég fékk flennifínar myndir hjá Svenna og er mikið af þeim komið hérna inn.

 

Ég tel að ég sé búin að ritskoða og taka út “ekki smart” myndir af okkur, en ef einhverjum finnst einhver mynd að sér ekki sæmandi á þessari síðu, þá þarf bara að láta mig eða Signýju vita og við tökum þær út.

 

Mér finnst allar myndirnar mjög flottar sem eru inni núna. Flestir náðust á filmu, en sumir voru sleipari en aðrir eins og t.d. Kristján Sigtryggs, sem virðist hafa komið sér hjá myndatökum, en hann hefur svo lítið að breyst að við getum sett inn gamlar myndir ef engar aðrar finnast, ég get vottað það að hann var á staðnum, því að ég var oft að ræða við hann.  Reyndar var minnst tekið í matnum og á ballinu. Síðan eru frekar fáar myndir af Svenna sjálfum, enda stóð hann sig mjög vel við myndavélina og hann hefur ekkert breyst heldur.

 

Skilst að á föstudeginum hafi einn af flottu lýtalæknum landsins litið inn í partýið hjá okkur og hafi ekki séð neinn business fyrir sig þar og hrökklast út.

 

Signý nánast baðst afsökunar á því að fara heim af ballinu á laugardaginn á undan mér og ég var óþarflega grimm við hana og tilkynnti henni að þetta yrði skráð að enn einu sinni hafi gömlu konurnar í saumaklúbbnum farið “snemma” heim að sofa.

 

Það var mjög gaman á ballinu, frábær hljómsveit og frábær matur, bæði hjá Finna og Ástu í hádeginu.

 

Heyrði að Signý hefði gefið Friðfinni takmarkalaust skotleyfi á sig og þá væntanlega aðra líka, en ég held að Finni sé eitthvað að mýkjast með árunum, því að hvergi fannst mér hann skjóta fast.

 

Gaman væri að heyra af ævintýrum sem “gamla fólkið” hugsanlega lenti í, ég veit um einn aðila sem lenti í aðstæðum sem hann hafði ekki séð fyrir að hann ætti eftir að lenda í á gamals aldri, en læt hann eða fjölskylduna um það hvort sú saga verður sett á netið.

 

Og að lokum, þá ítreka ég þakkir okkar fyrir móttökurnar sem voru alveg hreint FRÁBÆRAR og dagskráin FLOTT:

 

kveðja

Kapteinn Guðrún


Takk fyrir síðast

Sæl öll og þakka þeim sem ég hitti um helgina fyrir skemmtilega helgi. 

Náði því miður ekki að mæta í dagskrárliðinn “Kveðjur – knús og kossar” í gærmorgun. Ég hafði ekki komið heim fyrr um fimm leytið um morguninn og fannst ég ekki eiga það skilið sem yfir mig gekk um sex leytið, þegar brunaboðinn í húsinu fór af stað með ærandi hávaða, rétt eins og húsið stæði í björtu báli.  Þrátt fyrir að hafa innbyrt eitthvað áfengi um kvöldið, þá fór ég samt undir óhljóðunum um allt húsið til þess að athuga hvort það væri nokkuð að kvikna í eða verið að brjótast inn þar sem ég hreinlega vissi ekki hvaðan þessi hljóð kæmu, en þetta var reykskynjari sem var staðsettur þar sem ég náði ekki til hans, en ég náði svo fyrir rest að finna lausann gólflista til þess að pota í hann og slökkva á ósköpunum, en þegar hann þagnaði, þá náði ég að sofna aftur, rumskaði um tíu leytið og hugsaði (já hugsaði ) um að fara í Lions húsið, en var nokkuð fljót (2 sek.)að ákveða að ég nennti því bara ekki og þyrfti að sofa meira.  

Einhver úr árgangnum hefur greinilega verið að fikta í stjörnuspánni á moggasíðunni, þar sem stendur um Bogmenn (t.d. mig):

“Komdu snemma heim í kvöld, á morgun er stór dagur.” Er eitthvað verið að fíflast með mig þarna eða hvað, ég stóð náttúrulega vaktina fyrir árganginn bæði kvöldin, held að Gústi hafi verið einn eftir í árgangnum þegar ég fór heim á laugardagskvöldið, en ég fór klárlega síðust út úr húsi á föstudaginn, enda LANG YNGST í þessum hópi.

Brottför frá Siglufirði í gærkvöldi seinkaði til klukkan átta um kvöldið, þannig að ég var ekki komin heim fyrr en hálf eitt í nótt, en ég fékk myndir hjá Svenna og ætla að ná myndunum líka frá Soffíu og reyni að pota einhverju af þessu inn í kvöld.  

Kveðja Guðrún Valtýsdóttir. 

Er búin að kannað málið með reykskynjarann, hann var víst bilaður, kunni ekki við að setja þessa sögu inn á netið fyrr en ég var búin að ganga úr skugga um að húsið hefði ekki brunnið til kaldra kola í gær.


Árgangsmót á Siglufirði 13. – 15. júlí 2007 --Dagskrá

  Heill öllum fimmtugum     

Dagskrá í stórum dráttum:  

Föstudagur kl. 18:00 ---??? Þrekið ræður!!!

Heimaliðið fer að skila sér í Lions- húsið og gera klárt og aðkomnir   tínast/týnast í hús eins og færð og ferðahraði leyfir. 

10:30 Laugardagur Bjallan hringir við Neðra -----skólahúsið við Norðurgötu

Er ennþá sama lyktin á WC-unum ??

Hvaða lag sungum við hjá Kristjáni???

Voru ljósin holl???? Gamlar minningar hrærðar upp í blandi við gleið bros!!! 

11: 30  Þjóðlagasetrið 

Kunnum við að kveðast á ?  Gæti Laglausi kórinn gert garðinn frægan í rímnakveðskap, e.t.v. í útlöndum??? 

12:15   Setið í súpunni hjá Ástu á pizza 67 

13: 15  Kirkjan og kirkjuvörðurinn!

Tröppurnar frá toyota!            Gæti Guðrún G. e.t.v. reddað rúllustiga ??? 

13:45   Efra--- skólahúsið við Hlíðarveg           

Hvort mætir þar Páll eða Hinrik?  To be or not to be…..           

Ath. takið með ykkur sjónglerin ef skoða á skólaspjöldin

14:30  Leiðin liggur á leiðigarðana—verið rétt skóuð og vel klædd         

Óvænt uppákoma í ónefndum en annáluðum bílskúr á niðurleiðinni.         

Gæti komið sér  vel að hafa munskol eða minntur í malpokanum. 

15:00 Brakki eða bílskúr         

Þá hefst söltun við síldarminjasafnið—þeir sem ekki vilja eyða löngum tíma í bílskúrnum geta skeiðað á safnið. Hinir drolla og dolla í skúrnum og ganga svo í hægðum sínnum(oj. bara) og mæta ca kl.  

16:00 Í Bátahúsið   

Gætum við fengið Örlyg til að setja um löndunartór og kaðal??Verður það nýjasta aðdráttaraflið fyrir brottflutta: Sveifla á kaðlinum og skvamp í sjónum?? 

Eftir dvöl í Bátahúsinu getur fólk farið í Lions- húsið og spjallað smá áður en menn gera sig klára fyrir kvöldið—Skemmtiatriði æfð o.fl. 

20:00 Bíó Café  -- Kvöldverður- knall og Karma         

Heyrst hefur að stórlega hafi gengið á fjárstofninn hjá Hraunabónda          enda oft Lamb á matselinum og síðan lítil mús úr súkkulaði + smá íssletta í eftirrétt           Yfir og eftir og allt umkring máltíðina er öllum frjálst að láta ljós skína, ræðutími ekki takmarkaður ( takið bara með ykkur tómata).         

Munið að Finna söngbókina. 

23:30 Einkasamkvæmi lýkur og Karma Labbar á svið         

Hvenær og hvort kvöldinu lýkur eða lýkur ekki er algjörlega óskipulagt, það á bara að vera fjör í firðinum!!!!  

Sunnudagur: 10:30/11:00 ----14:00

Þeir hressustu mæta í Lions-húsið og hella á könnuna 

Kveðjur – knús og kossar (vonandi engin kjaftshögg). 

Hvort verður það 2012- eða 17 næst ????? 

Engin ábyrgð er tekin á því að tímasetningar í dagskrá standist eða dagskrárliðir riðlist:Allir taka þátt á eigin ábyrgð og eiga það svo bara við sín tryggingafélög ef eitthvað fer alvarlega úrskeiðis      


Guðrún V. og Rögnvaldur skrifast á og bera saman --- ekki bækur heldur ---fjölda barnabarna

Athugasemdir

1

Flott hjá þér Guðrún V, en þetta með barnabörnin þá toppa ég þetta alveg þar sem ég á 4 barnabörn sem ég var að fara með í Drangey í dag þar sem ég er leiðsögumaður öðruhverju en hvað sem öðru líður þá hlakka ég mikið til árgangsmótsins, en þetta með summuna af 5 & 10 þá fór stærðfræðikennslan eitthvað fyrir ofangarð og neðan svo ég sleppi þessu alveg

Kveðja Röggi. p.s. og farið svo að skrifa eitthvað

Rögnvaldur S Valbergsson (IP-tala skráð) 29.6.2007 kl. 21:40

2

 

Frábært, mig hefur alltaf langað út í Drangey, en þegar maður er að fara til Siglufjarðar, þá virðist maður ekki vera með það á dagskrá að stoppa neitt á leiðinni, en ég á vonandi eftir að gera það fljótlega.

Mig minnir að það hafi verið leiðsögumaður þarna sem var kallaður Drangeyjarjarlinn, sem bæði sigldi bátnum og var með leiðsögn um eynna (ef ég er ekki að ruglast á eyjunum í Skagafirði), en hann hlýtur að vera mjög fullorðinn núna ef þetta er sama eyjan/drangurinn.

Stærðfræðikunnáttan hefur þó dugað þér í þetta sinnið og það sem meint er með á svona bloggsíðum er að maður á að skrifa hvað summan af þessum tveimur tölum er, þ.e. leggja þær saman. T.d. Summan af fjórum og sautján er 21. Þetta eru reglur sem rekstraraðilar bloggsíðan setja upp og er held ég mjög almennt fyrir athugasemdir, þar sem aðilar þurfa ekki að skrá sig inn.

GV (IP-tala skráð) 29.6.2007 kl. 23:39

3

Rétt hjá þer Guðrún, Drangeyjarjarlinn er enn með


Fréttir af Hafdísi Kolbeins og kveðja til árgangsins - Hún verður á Grikklandi

Athugasemdir

1

 Þegar sú stund rann upp hjá mér að ég fyllti hálfa öld í aldri var ég stödd í London þar sem ég eyddi viku í allt og ekki neitt.

En eins og það er nú alltaf gott að komast af og til í annað umhverfi er jafngott að komast aftur heim og ekki spillti það nú fyrir í þetta sinn að
við heimkomuna beið mín þetta líka skemmtilega bréf frá Siglufirði  þar sem boðað er til árgangsmóts í sumar.

Það verður vonandi góð aðsókn og alveg örugglega mikið fjör ef ég þekki mannskapinn rétt.

Enn skemmtilegri er hugmyndin að opna heimasíðu árgangsins. Ég mun örugglega fylgjast með því sem þar birtist því ég þekki vel til góðra verka Guðrúnar Valtýs á þessu sviði af eigin reynslu í gegnum mina vinnu.

Ég er nú þegar orðin "græn" af öfund, því ég mun ekki komast á Sigló á þessum tíma því fyrir lögnu er búið að skipuleggja fjölskylduferð til
Grikklands nákvæmlega á þessum tíma  þ.e. frá 14. til 28.júlí.

15 manna hópur hrópaði mig niður þegar ég nefndi breytingu á ferðinni "vegna árgangsmóts á Sigló.! ! ? .".......... Þau gera sér enga grein fyrir hverju ég er að missa af.
Ég verð því bara greinilega að sætta mig við að vera svolítið  " græn" eitthvað fram eftir sumri.

En annars er allt gott af mér að frétta, ég bý á Seltjarnarnesi og starfa hjá Endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands sem fjármálastjóri. http://www.endurmenntun.is/  Dætur mínar eru tvær, Guðný mín sem kom í heiminn fyrir 34 árum og flest ykkar muna eflaust eftir,Guðný er tölvunarfræðingur og kennari, mikill dugnaðarforkur, hún er gift og  hefur gert mig að þrefaldir ömmu. Friðbert 13 ára, Kolbeinn Ingi 5 ára og Eydís 2ja ára. Anna María er fædd 1985 og er því 22ja ára hún er Líffræðinemi í HÍ, ásamt því að vera mikil handbolta og íþróttakona.

 

Vonandi muna sem flestir skrifa af sér fréttir hér á síðuna ég fylgist spennt með. 

 

Ég mun hugsa til ykkar dagana 13. til 15. júli og óska ykkur góðrar skemmtunar.  Gangi ykkur sem best og kær kveðja til  ykkar allra. Hafdís Ósk Kolbeinsdóttir 

 

Hafdís Ósk Kolbeinsdóttir (IP-tala skráð) 3.7.2007 kl. 13:05


Heimaliðið fundar á miðvikudag 11. júlí kl. 18:00

Heimaliðið var boðað til fundar á Pizza 67 sl. miðvikudag. Mætt voru Anna Marie, Auður, Ásta, Signý og Sveinn (hvar voru allir hinir úr stafrófinu). Við fórum yfir dagskrárdrögin frá í vetur og skiptum með okkur verkum varðandi undirbúningin. Reyndar fór umræðan svolítið að snúast um skort á skemmtikröftum í árgangnum. Niðurstaðan var sú að það væri eiginlega bara Finni og svo Biggi Ölmu sem spilaði á gítar.

Hér með er auglýst eftir nýjum númerum.

Ákveðið var að koma aftur saman á sama stað á sama tíma þ.e. hjá Ástu á miðvikudag 11. júlí kl. 18:00. Ef einhverjir burtfluttir verða mættir í bæjinn þá eru þeir hvattir til að mæta líka.

Síðan síðustu tölur voru birtar hafa bæst í 3 úr árgangnum og 2 makar, þannig að aðeins herslumunin vantar til að skríða yfir 40 í þátttöku. Eru ennþá einhverjir að gleyma sér.

Gleyma sér, vel á minnst, við komumst að þeirri niðurstöðu á fundinum að þrátt fyrir að við værum farin að gleyma ýmsu, þá gæti bara ekki verið að einhver hefði gleymt því að hann yrði fimmtugur á árinu.

Sjáumst. Smile WinkLoLHeart

Signý Jóhannesdóttir


Lélegt minni eða þátttaka???

Þegar þetta er skrifað hafa 23 úr árgangnum staðfest þátttöku í árgangsmótinu með því að greiða mótsgjaldið, auk þess hefur verið greitt fyrir 11 maka. Mér telst til að ég hafi sent út bréf á 55 heppna einstaklinga í vor. Mig grunar að enn eigi nokkrir eftir að taka við sér, hef heyrt frá nokkrum sem ég held að séu bara að gleyma sér.

 Talandi um að gleyma, þá kemur upp í hugan lítil saga úr kaupfélaginu.

Ég var að snúast þar með innkaupakörfuna mína síðla dags, þar voru líka Hemmi og Finni að grípa eitthvað í körfur. Allt í einu mundi ég eftir einhverju sem var innar í búðinni, ég legg frá mér körfuna og sæki þetta sem ég hafði gleymt. Þegar ég kem að kassanum eru þeir félagar að koma þangað líka, en ég körfulaus. Mér verður að orði , "Sveim mér ef ég er ekki búinn að týna körfunni, strákar getur þetta eitthvað haft með aldurinn að gera? Þeir félagar glottu bara, en frú Sigurbjörg sem var þarna með Finna, kallaði á eftir mér þar sem ég snéri við að leita að körfunni :

"Varstu ekki búin að frétta það? Árgerð "57 hefur reynst svo gölluð að það stendur til að innkalla allann árganginn!!!

 Í þeirri von að þetta sé stórlega íkt hjá henni Sibbu, þá vona ég að einhverjir hrökkvi í gírinn næstu daga.  Heimaliðið ætlar að funda í dag kl. 18:00 hjá Ástu á Pizza 67 og leggja enn frekar á ráðin.

kv.

Signý Jóh


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband